Jæja kæru notendur, þá eru úrslitin í triviunni loksins komin á prent. Raunar lágu þau fyrir fyrir margt löngu en þannig er mál með vexti að ég er að vinna mjög mikið útá landi í sumar og kemst lítið á netið. Ég biðst því innilegrar afsökunar á hversu langan tíma það tók mig að koma þessu frá mér. Padfoot var löngu búin að skila þessu af sér!

Spurningar og svör voru eftirfarandi:

1. Hverjir sköpuðu þættnia “How I met your mother”?
Svar: Carter Bays og Craig Thomas

2. Hvað voru gerðar margar seríur af Seinfeld?
Svar: níu

3.Hver fór með hlutverk Dr. Cox í Scrubs?
Svar: John C. McGinley

4. Hver fór með hlutverk Janice “on again-off again” kærustu Chandlers?
Svar: Maggie Wheeler

5. Hvaða persóna í Friends hefur aldrei búið í íbúð með Monicu (á meðan seríurnar gerðust)
Svar: Ross

6. Hvar búa Doug og Carrie í King of Queens og hver býr í kjallaranum hjá þeim.
Svar: Queens-New York og pabbi hennar Carrie, Arthur.

7. Hvað heitir kona George Lopez í samnefndum þáttum?
Svar: Angie Lopez

9. Hvert var draumastarf Joey þegar hann var ungur?
Svar: Space Cowboy eða Geim-kúeki

10.Í hvaða þætti dó einn aðaleikarinn svo það þurfti að drepa pesónuna sem hann lék?
Svar: 8 simple rules

Engum tókst að næla sér í öll 10 stigin en sigurvegarar með 9 stig voru siggason, Chocobofan og Feiturfroskur.

Hér er svo stigadreifingin:

siggason-9 stig
Chocobofan-9 stig
Feiturfroskur-9 stig
dala-8 stig
endla- 7 1/2 stig
BlackNight-6 stig
Cassandra-4 1/2 stig
Lonni-4 stig


Ef einhver vill sjá um næstu trivu endilega senda mér skilaboð.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _