Brad Pitt í Friends Já það hlaut að koma að því að pitturinn kæmi sér í Friends. NBC hefur gefið út þá tilkynningu að Brad Pitt eigi að leika í einum þætti í næstu seríu. Hann á að vera gamall æskuvinur Monicu og verður hluti af þættinum í flashback senum. Þar er Monica feit og já já Brad Pitt verður feitur dömur mínar og herrar. Það verður sett á hann þetta frábæra fitugervi sem er búið að gera við Monicu og líka Joey í einum þætti. Það ætti að vera forvitnilegt að sjá Brad Pitt feitan. Monica og Pitt hittast svo aftur í nútímanum og þá hefur hann líka grennst. Monica gerir sér svo grein fyrir því að það eina sem þau eiga sameiginlegt er að þau voru einu sinni feit og that´s it!
Ég veit ekki með ykkur en þetta hljómar nokkuð vel að mínu mati.
Hvernig líst ykkur á þessar fréttir og eruð þið ekki spennt að fara að sjá nýju seríuna?