Vertu fyrst/ur á Íslandi til þess að sjá Tekinn! Á þriðjudaginn næstkomandi (03.10.06) mun Minn Sirkus forsýna, eingöngu fyrir meðlimi Minn Sirkus, sjónvarpsþáttinn Tekinn.

Sjáðu hina og þessa einstaklinga vera “Tekna” allhressilega af Audda Blöndal.

Skemmtikrafturinn og sjónvarpsstjarnan Auðunn Blöndal byrjar með glænýjan þátt á Sirkus í haust.

Þátturinn hefur hlotið nafnið Tekinn og er í anda Punk’d með Ashton
Kutcher, sem flestir ef ekki allir ættu að kannast vel við.
Auddi ætlar að hrekkja þjóðþekkta einstaklinga og taka allt upp á faldar myndavélar. Með aðstoð vina og ættingja “fórnalambanna” verða þeir leiddir í gildrur þar sem leikarar í hinum ýmsum gervum -og undir stjórn Audda, gera allt sem í þeirra valdi til að pirra, hræða og hrella viðkomandi.

Hvernig bregðast íslensku stjörnurnar við að vera tekinn af Audda Blö? Og hvað eru vinir og ættingjar þeirra tilbúnir að ganga langt í stríðninni?

Tekinn er 12 þátta sería á dagskrá á Sirkus kl.21.00 á mánudögum.
Dagskrárframleiðandi þáttarins er Kristófer Dignus, sem stjórnaði Audda og Strákunum á Stöð 2.