Matt Le Blanc Sælir, þetta er mín fyrsta grein hér á Grínþáttum sem verður um gamanleikarann Matt Le Blanc.

Hæð: 178cm
Fæddur: 25. Júli 1967
Fæðingarstaður: Newton, Massachusetts
Aldur: 38
Kvæntur: Melissa McKnight

Þegar hann var yngri langaði honum alltaf að verða mótórhjólakappi en mamma hans bannaði honum það. Þegar hann útskrifaðist úr framhaldsskóla ákvað hann að flytja til New York City. Hann byrjaði að leika í nokkrum auglísingum, helstu auglísingarnar voru það fyrir Levi's 501 jeans, Coca-Cola og Doritos.

Árið 1988 fékk hann fyrsta allvöru hlutverk sitt í þáttunum “TV-101” hann hefur gegnum tíðina leikið í eftirfarandi þáttum og myndum:


Joey
Charlie's Angels: Full Throttle
All the Queen's Men
Lookin' Italian
Lost in Space
Red Shoe Diaries 7: Burning Up
Ed
Friends
Reform School Girl
Red Shoe Diaries 3: Another Woman's Lipstick
The Killing Box
Vinnie & Bobby“
”Top of the Heap"
Anything to Survive
TV 101

(Ég held að ég sé ekki að gleyma neinu, endilega bendið mér á eitthvað ef eitthvað er að.)

Frægastur er hann samt fyrir leik sinn í Friends. Þar leikur hann Joey Tribbiani. Svo hafa komið sér þættir “Joey” um karakterinn Joey sem er að reyna að meika það í leik bransanum. Topp þættir þar á ferð.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, og endilega segið mér hvað ykkur finnst um þessa grein. Samt ekki of mikil skítköst. ;)

Heimildir aðalega á Imdb.com