Ég er ekki alveg að skilja þetta með að pabbi Chandlers eigi að vera pabbi barnsins hennar Rachel.
Í fyrsta lagi þá hitti hún hann í fyrsta skipti rétt fyrir brúðkaupið en þá var hún orðin ólétt ekki satt?
Muniði óléttuprófið sem Phoebe fann í ruslinu og hélt að Monica hefði tekið? Það hefur sem sagt væntanlega verið frá Rachel eða hvað? Þá var hún ekki einu sinni búin að hitta pabbann.

Skiljiði hvað ég er að fara? Kannski er ég að misskilja eitthvað og endilega leiðréttið mig þá áður en ég breytist í eitt stórt spurningarmerki.

???????