mistök Það er flókið ferli að búa til Friends þátt, það þarf að huga að öllu sem hefur komið fram áður og þannig, það heppnast ekki alltaf að láta þetta allt smella saman…

Ég fann sumt af þessu á netinu og sumu hef ég bara tekið eftir sjálf, en ég ábyrgist ekki að þetta sé allt alveg hárrétt ooooog ég veit ekki hvað af þessu hefur komið fram áður, so…plís ekki eipa ef þetta er ekki fullkomið:)

1. Í TOW George Stephanopoulos þá eru chandler og joey að bjóða ross á hockey leik í tilefni afmælis hans
Ross segir: “Funny, my birthday was seven months ago.”
svo segir hann: “Oh my God, is today the twentieth, October twentieth?”
Þetta ætti að segja okkur að afmælið hans ætti að vera í Mars…
En….
í TOW Joey´s new girlfriend er Gunther að spurja Rachel hvenær hún eigi afmæli og segist vera að gera lista með afmælisdögum.
Ross segir “Oh, mine's December…”

2. Bæði í TOW George Stephanopoulos og TOW Eddy won´t go, segi Phoebe Monicu frá því að hún svaf hjá Jason Hurley bara rétt eftir að þau hættu saman, Monica er jafn hissa í bæði skiptin, eins og hún hafi ekki vitað af því í seinna skiptið heldur. Í fyrra skiptið segir hún reyndar nokkrum tímum en í seinna skiptið einum tíma eftir að þau hættu saman.

3. Í TOW The Sonogram At The End eru Ross, Susan og Carol að rífast um hvað eftirnafnið á Barninu á að vera, það hefur aldrei komið fram hver niðurstaðan í rifrildinu var “willick geller bunch” :)

4. Í TOW The Flashback segir Monica Ross að taka fæturnar af borðinu (hún er nú með ólæknandi hreingerningaáráttu) en hún sést í nokkrum þáttum sjálf með fæturna á borðinu…td í TOW The Evil Orthodontist.

5. Í TOW The Boobies fríkar Rachel alveg út af því Chandler sér brjóstin á henni, endar með því að Monica labbar inná Joey eldri í sturtu:) en svo í TOW Rachels new dress þá fer hún út að borða með Joshua og foreldrum hans og annað brjóstið poppar út og henni er alveg sama, segir:“it´s ok, I´ve got nice boobs”

6. Í TOW No one is ready áttu allir að vera tilbúnir klukkan 8 en klukkan í eldhúsinu er 4….

7. Í TOW The Resolutions (5.seria) ætlar Phoebe að kenna Joey á gítar og kennir honum önnur nöfn á gripunum af því hún segist ekki kunna alvöru nöfnin (iceberg, claw, old lady) en í TOW the baby on the bus (2. seria) þegar Terry ætlar að fá atvinnu trúbador, hittir hún Stephanie fyrir utan (atvinnumanninn) og spyr hvort hún þekki d-minor og þannig, sem sagt, telur upp gripin…

8. Í TOW all the wedding dresses fara Monica og Phoebe að sækja brúðarkjól Emily en í brúðkaupinu sjálfu er Emily í öðrum kjól..

9. Í þættinum þegar Joey leikur í leikriti með Kate og Phoebe verður eftir heima þegar allir hinir fara og horfa á af því hún er að bíða eftir að komast að í símanum…þá skiptir hún öllu í herbergjunum hjá Monicu og Rachel…þær fara sem sagt inn í öfugt herbergi að sofa, en koma útúr því sem þær eru venjulega í þegar þær vakna..

10. Í TOW prom video er Chandler hissa á hvað Monica er feit..hann hafði nú samt séð hana þegar hún var feit (kannski var hann bara búinn að gleyma því…)

þetta verður ekki lengra núna:)

KaT