Andlitslaust fólk Það hafa þó nokkrir karakterar verið nefndir í Friends þáttunum en enginn hefur séð þá (spooky) ! Ég ætla að renna aðeins yfir nokkra þeirra ……

Gandalf
- Þennan grínkall sáum við aldrei. Hann átti eitt sinn að fara með Ross og Chandler í skemmtiferð (og fyllerísferð) en komst svo ekki svo ekkert varð úr því.

Chip
- Það hefur verið þó nokkuð oft verið minnst á þennan gæja, gamall herbergisfélagi Chandlers. Hann bjó með Chandler á undan Joey.

Pabbi Chandlers
- Það sást aldrei í andlit pabba Chandlers fyrir þessa kynskiptiaðgerð. Það sást einu sinni í bakið á honum þegar Vinirnir voru að rifja upp gamlar Þakkargjörðarhátíða-minningar.

Önnur Systir Rachelar
- Samkvæmt Rachel á hún tvær systur, önnur þeirra dekurrófa en hin er “bitur” (bitter). Við sáum leikkonuna Reese Witherspoon leika Jill, dekurrófusystirina en við höfum aldrei séð hina.

Denise
- Herbergisfélagi Phoebe-ar sem enginn vissi um. Pheebs sagði Vinunum frá henni þegar Rachel þurfti að flytja út úr íbúð Mon vegna þess að Chan var að flytja inn.

The Ugly Naked Guy
- Þetta gætu verið mistök hjá mér, en mig minnir að það hafi aldrei sést framan í hann. Ef ekki þá væri ég alveg til í að sjá andlit þessarar goðsagnar :-)


Þetta eru aðeins nokkrir þeirra, endilega komið með fleiri. Það væri gaman að tengja andlit við öll þessi nöfn.