Ég fór að pæla í því þegar ég skoðaði könnunina sem er núna, ef einhver í friends myndi hætta hvernig haldiði að það yrði gert?
Ég myndi segja að þetta yrði svona:

Monica: Hún myndi öruglega giftast og flytja út í sveit og eignast 14 börn og hund!

Ross: Fengi eitthvert þvílíkt 5 ára risaeðluverkefni á Norðurpólnum eða eitthvað álíka ömurlegt!

Peobe: Myndi finna einhvern mann sem er álíka ruglaður og hún og þau myndu fara að búa en það myndi ekki virka. Þau færu á hausinn og lentu á götunni og ynnu sér inn pening með því að syngja og spila!

Candler: Yrði hommi og væri í hommasýningunni sem pabbi hans er með í!

Rachel: Hún myndi verða frægur fatahönnuður, yrði mjög snobbuð!

Joey: Þættirnir verða bara beinlínis að enda svoleiðis að hann finnur “True love” og giftir sig (heldst ætti hann að giftast Janice).

Þetta eru bara mínar hugmyndir endilega komið með fleiri.