Þetta eru algjörir snilldar þættir með bam margera (bretta snilla,jackass og CKY)pabba hans, mömmu hans, frænda hans don vito sem maður verður bara að hlæja að, Ryan Dunn (Jackass), Brandon dicamillo (jackass), Raab himself (jackass), Rake yohn (CKY) og svo fullt af frægum gestum og fólki sem bam þekkir.

Þættirnir snúast eiginlega bara um að þeir geri eitthvað heimskulegt og pirra foreldra og frænda hans Bams Don vito.
Eins og í einum þætti byggðu þeir risastóran skate ramp inn í húsi foreldra sinna það var snilld og svo byggðu þeir spilavíti upp í trénu á lóðinni sinni og þeir gera mikið af heimskulegum stuntum ef ykkur líkaði við Jackass eða viljið fá hugmyndir til að reita foreldra ykkar til reiðis eða bara til að skemmta ykkur þá er þetta þátturinn.

Þetta er algjör snilld persónulega þá eru þetta bestu þættir sem ég hef séð en ég á 1, 2 og 3 seríu mæli með þessu.