Veðmálið Ég sá í gær á stöð 2 þáttinn þar sem stelpurnar misstu íbúðina sína í veðmáli. Þetta byrjaði allt með sakleysislegri upphæð og varð að risastóru veðmáli ! Þær vildu losna við The Chick því HÚN var að verða að HANA ! Þetta endaði allt í vitleysu. . . .
Ross bjó til sniðugan leik. Í einu liði var Rachel og Monica en í hinu voru Chandler og Joey. Hvort liðið þurfti að svara 10 spurningum. Það lið sem svaraði flestum réttum vann. Það voru fjórir flokkar sem mátti velja úr :

1. Hræðsla og Gæludýra-pirringur (eitthvað svl.)
2. Fornsaga
3. Bókmenntir
4. Það er allt skylt

Þessi leikur var mjög skemmtilegur. Ég ákvað að skrifa niður spurningarnar sem þau fengu og sjáið þið hvort þið eruð nógu mikil Friends fan til að svara þeim. Svörin eru neðst.

SPURNINGARNAR.

Strákarnir fengu fyrstu spurninguna og völdu 1 flokkin.

1. Hver er mesti \“gæludýra-pirringur\” Monicu ?

Þeir svöruðu rétt og stelpurnar völdu sama flokk.

2. Samkvæmt Chandler, hvaða fyrirbæri hræðir líftóruna úr honum ?

Þær svöruðu einnig rétt.

Næst völdu strákarnir \“Það er allt skylt\” flokkinn. Þeir fengu spurninguna :

3. Monica og ég eigum bæði ömmu sem dó og þið komuð bæði með í jarðarförina. Hvað heitir hún ?

Þeir svöruðu aftur rétt. Stelpurnar velja bókmenntir næst. . . .

4. Í hverri viku kemur sjónvarpsdagskráin í íbúð Joey´s og Chandler´s. Hvaða nafn er það stílað á ?
Þær svöruðu því miður vitlaust og misstu eitt stig.

Við fengum ekki að sjá fleiri spurningar þangað til staðan var orðin 9 - 8 fyrir strákunum. Þá áttu stelpurnar að velja og völdu flokkin \“það er allt skylt\”. Þær fengu spurningu um pabba Chandlers.

5. Hvað heitir Las Vegas \“bara fyrir karlmenn\” skrípaleikurinn sem pabbi Chandlers er í ?

Þær svöruðu rétt og jöfnuðu. Þá var komið að \“lightning round\” sem Ross hafði tilbúna. Þau áttu að svara eins mörgum spurningum og þau gætu á 30 sekúndum. Ég ætla bara að skrifa allar spurningarnar hér fyrir neðan og svörin síðan neðst með hinum svörunum.


ALLAR SP. SEM JOEY OG CHANDLER FENGU :

6. Hvað var nickname-ið hennar Monicu þegar hún var markvörður í vallarhokkí ?

7. Rachel segir að þetta sé uppáhaldsmyndin sín. . . .

8. Raunverulega er uppáhaldsmyndin hennar. . . .

9. Í hvaða líkamshluta stakk Monica óvart blýant í 14 ára gömul ?

10 Monica flokkar handklæðin sín. Hve margir eru flokkarnir ?

ALLAR SPURNINGARNAR SEM RACHEL OG MONICA FENGU :

11 Hver er uppáhaldsmaturinn hans Joeys ?

12 Hvað var Chandler gamall þegar hann snerti brjóst fyrst ?

13 Joey átti ímyndaðan vin í barnæsku. Hvað hét hann ?

14 Starf hans var. . . . . .

15 Við hvað vinnur Chandler ?


SVÖRIN VIÐ FYRSTU SPURNINGUNUM :

1. Mesti \“gæludýrapirringur\” Monicu er dýr klædd eins og menn.

2. Michael Flatley, Lord of the Dance hræðir líftóruna úr Chandler.

3. Joey náði að GISKA á svarið í þessari spurningu. Amma Ross og Rachels hét Althea ! Líkurnar á að Joey skyldi giska á það. . . 1/999999. . . . . . .

4. Stelpurnar svöruðu þessari vitlaust. Þær sögðu að blaðið væri stimplað á Chandler Bing en það stóð Miss Chanondolor Bing

5. Skrípaleikurinn heitir \“VIVA LA GAYGAS\”.

6. Hún var kölluð Big Fat Goalie þegar hún var markvörður í vallarhokkí.

7. Að hennar sögn er Dangerous Liaisons uppáhaldsbókin. . . .

8. en í rauninni er það Weekend At Bernie´s.

9. Chandler hvíslaði eitthvað í eyra Ross í þessari spurningu og \“uhhh, NOOO\” sagði Ross. Hvað ætli Chandler hafi sagt ? Rétt svar er eyrað.

10. Ótrúlegt en satt, Monica raðar handklæðunum sínum í 11 flokka !!!

11. Samlokur er uppáhaldsmaturinn hans Joey´s. Þetta eiga allir að vita !

12. Stelpurnar svöruðu vitlaust og sögðu 14 ára. Rétt svar var 19 ára.

13. Ímyndaður vinur Joeys hét Maurice. . . .

14. Og vann sem geimkúreki.

15. Það kom aldrei í ljós í þessum þætti. Ef ég á að vera hreinskilin þá bara hreinlega veit ég ekki við hvað hann Chandler vinnur. Hann var einhverntíman með eigin skrifstofu þegar hann þurfti að reka Ninu. Svo var það rassaskellirinn sem var yfirmaðurinn. . . . hefur það einhverntíman komið fram við hvað hann vann ?

Jæja, hvernig gekk ? Er þetta ekki brillíant leikur ?