fleiri fróðleiksmolar Nokkrir fróðleiksmolar sem ég held að hafi aldrei komið hér fram áður. (ath. þetta er mismerkilegir molar að sjálfsögðu:).

1.David Schwimmer fór í Beverly Hills High skólann sem Beverly Hills 90210 eru byggðir á enda er hann nett snobbaður greyið.
2.Matthew Perry birtist einmitt í einum BH 90210 þætti snemma á ferlinum. Hann segist muna lítið eftir því og vill helst gleyma því
3.Schwimmer er sonur tveggja lögfræðinga í LA(karl og konu :)
4.Matthew Perry er mjög hrifinn af kvenkyns söngvurum eins og t.d. Shawn Colvin, The Indigo Girls og Tori Amos.
5.Courtney Cox hugsar mikið um tennurnar í sér og gerir allt til að hafa þær skjannahvítar.
6.David Schwimmer vill verða pabbi fljótlega, hann segir að það sé hlutverk allra, að eignast fjölskyldu og skapa gott umhverfi fyrir hana, hann var einu sinni með Natalie Imbruglia en hún hætti með honum af því að hann vildi ekki giftast henni.( öö hvað með fjölskylduna og allt það:)
7.Allir vinirnir hittast oft á sunnudagskvöldum til að spila Scrabble og drekka bjór.
8.Kvennamaðurinn Matt Le Blanc hefur verið með Minnie Driver, blakgellunni Gabrielle Reece,klámstjörnunni Jennu Jameson og leikkonunni Kate Hudson( sem er ekki orðinn 20:).
9.Jennifer Aniston ætlaði alltaf að vera listamaður(helst skúlptúristi), þegar hún var 11 ára málaði hún málverk sem var svo sýnt á Metropolitan listasafninu í New York( hef ekki hugmynd hvort þetta er bullshit eða ekki).
10.Jennifer Aniston hefur verið með Noah Wyle, Jonathan Silverman(leikari) og Matthew Perry.
11.Schwimmer kvartaði yfir því að fá ekki að fíflast með apanum sem lék Marcel á milli atriða, vegna þess að þjálfarar apans vernduðu hann of mikið.(ææ greyið David)
12. Þeir sem hafa neitað að koma fram í Friends eru Jim Carrey,Eddie Murphy,Matthew Broderick,Roseanne, Dan Akroyd, Michelle Pfeiffer og John Cusack.
13.Framleiðendur þáttanna segja að vinirnir myndu ekki hafa efni á íbúðunum þeirra í alvörunni miðað við störf þeirra.
14. Í Friends töldu Joey og Chandler skrefin frá íbúð þeirra að kaffihúsinu og það var 97 skref. Í raun eru það vel yfir 100.000 skref þarna á milli, því stúdíóið fyrir kaffihúsið er á hinum enda LA. Þau þurfa að taka margar senur í einu á kaffihúsinu fyrir marga þætti.
15. Allir höfundarnir að Friends og framleiðendur hafa komið fram í feluhlutverkum.
16. Helen Baxendale, sem lék Emily í Friends, var ólétt á meðan hún lék í Friends. Þegar þau tóku upp í London var hún komin það langt á veg að þau urðu kvarða allar tökur af henni við öxl.
17.Faðir Jennifer Aniston heitir John Aniston og er leikari, hann lék einmitt í frægri sápuóperu sem kallaðist “Days of our lives”. Foreldrar Aniston skildu þegar hún var 9 ára.

Jæja fleira hef ég ekki í bili, ég vona að þið hafið haft gaman af.
Chandler: “What would it be like if Joey was president”

-cactuz