Tveir góðir Ég er frekar sáttur við síðustu tvo þætti, þeir voru mjög fyndnir. Þetta er farið að líta betur út núna og það er kominn aftur svona kjánaskapur sem maður vill sjá í þessum þáttum. Mér fannst mjög fyndið að sjá Joey og Ross rífast yfir stelpu og segja frá ýmsum leyndarmálum í leiðinni. Það er greinilegt að Chandler er að breytast mikið út af giftingunni og það er lítið við því að gera. Joey heldur alltaf uppi fíflalátunum og stelpurnar eru að verða fyndnari, sérstaklega Rachel. Ég vona að restin af þessari seríu verði jafngóð og þessir tveir þættir. Það þarf bara að ljúka þessari giftingu( ef af henni verður) og halda svo húmornum uppi.
Það eru bara miklar breytingar núna í gangi sem maður verður bara að venjast. Ég hef mikla trú á því að nú fara þættirnir að skána og verða sprenghlægilegir aftur:)

Chandler: I guess Gloria Estefan was right after all. Eventually the rythem will get you.

-cactuz( I believe)