Já þátturinn getur nú ekki bara verið með þessar sex persónur, það þarf að fylla í sum göt. Þar koma til sögunnar gestaleikarar sem leika persónur sem koma fram í fleiri þáttum en einum. Ég ætla aðeins að tala um þekktustu persónurnar.
Janice: Janice er fyrrverandi kærasta Chandlers, sko þegar ég heyri þetta nafn þá líður mér illa. Ég held að ég hef aldrei séð jafn pirrandi persónu í sjónvarpsþætti. Chandler var því miður með þá ranghugmynd í kollinum að Janice væri sálufélagi hans, enda byrjaði hann og hætti með henni til skiptis. Hann bara gat ekki sagt skilið við hana fyrr en í seríu 4 held ég. Hún hefur þá náðargáfu að koma þegar Chandler er veikur fyrir og einmana. Ég mun ekki sakna hennar.
Gunther: Gunther er persóna sem mér hefur alltaf líkað vel við og vorkennt. Hann er svo brjálæðislega hrifin af Rachel greyið en hún lítur ekki við honum. Gunther mætir oft í partý hjá vinunum en segir heldur lítið, hann bara starir á Rachel og muldrar hvað hann sé hrifin af henni. Ef Friends er sanngjarn þáttur þá ætti Gunther að lokum að byrja með Rachel en það vita allir að það gerist aldrei því það er bókað að hún endi með Ross. Ég myndi vilja fá þátt sem yrði tileinkaður þessum frábæra karakter, Gunther.
Estelle: Estelle er umbinn hans Joey og hún hefur örugglega reykt alla ævi. Hún er gífurlega stressuð og hefur aldrei tíma til að hjálpa Joey við að fá vinnu. Það vita allir hversu heimskur Joey er og hversu lélegur leikari hann er en ég held að Estelle eigi stóran þátt í því hversu illa Joey gengur að koma sér á framfæri í leiklistinni.
Ursula: Ursula er persóna sem kom fyrst fram í þáttunum Mad About You. Þar lék Lisa Kudrow hana langt áður en Friends byrjaði, hún var svo sett inn í Friends “plottið”. Ég held að það hefur aldrei komið fram afhverju þær tvær( Phoebe og Ursula) hata hvor aðra svona mikið. Vonandi að það verði skýrt fljótlega. Ursula hefur komið Phoebe oft í klandur, t.d. þegar hún notaði hennar nafn í klámiðnaðinum. Ursula er að sjálfsögðu mjög skrýtin eins og Phoebe. Joey fór einu sinni á date með Ursulu og Phoebe var ekki ánægð með það.
Joanna: Joanna er fyrrverandi yfirmaður Rachel sem Chandler var með um tíma. Hún er mjög frek og varð Chandler að hálfgerðu leikfangi hennar um tíma( á skrifstofu hennar). Hún því miður varð fyrir leigubíl daginn sem Rachel átti að fá launahækkun. Rachel varð mjög leið…..
….. yfir því að missa af launahækkuninni. Sophie varð mjög hamingjusöm yfir því að Joanna dó enda var hún búin að lifa í rassgati Joönnu í mörg ár án árangurs.
Að lokum vil ég minnast á húsvörðinn Treager, sem því miður hefur aðeins komið fram í einum þætti(held ég). Í þeim þætti breyttist þessi ruddalegi húsvörð í dansara fyrir tilstilli Joey, sem kenndi honum nokkur dansspor ala Joey. Treager komst þá á húsavarðaballið “superball”(bara snilld) og hann vonandi heillaði Marge, húsvörð sem hann var hrifinn af. Ég myndi vilja sjá Treager aftur í einhverjum þætti.

Jæja þá hef ég lokið þessari samantekt á skemmtilegustu aukapersónunum í Friends, ég veit ég er að gleyma fullt af fólki en mér finnst þetta fólk áhugaverðast. :þ