Nokkur mistök í Friends Það leynast oft mistök í sjónvarpsþáttum og Friends er enginn undantekning. Hér eru nokkur atriði:
1.Í pilotnum kallar Rachel kærastann Barry Finkel en í öðrum þáttum kallar hún hann Barry Farber
2. Þegar Joey leikur rassinn á Al Pacino í sturtunni þá sést greinilega á skugganum að hann er í stuttbuxum.
3. Joey segir í TOW Mrs Bing að mamma hans fæddi sjö börn en í öðrum þætti segir hann að hann eigi sjö systur.-Halló
4. Í TOW the dozen lasagnes býr Monica til lasagna fyrir frænku sína en frænkan vill grænmetislasagna, þá gefur Monicu vinunum þær og Phoebe hjálpar við að borða þær. Er hún ekki grænmetisæta?
5. Í sama þætti segir Chandler að Kip(fyrrverandi herbergisfélagi hans) hafi flutt út af því hann gifti sig. Í TOW all the Kips segir hann við Rachel að hann hafi flutt af því að Kip og Monica hættu saman.
6.Í TOW the bullies er hundur að hrella Phoebe,Rachel og Joey með því að gelta að leigubílnum hennar Phoebe. Þegar hundurinn hoppar að hlið bílsins þá sést í hendi halda honum uppi.
7. Í TOW The Metaphorical Tunnel kemur Joey inn á kaffihúsið og Chandler segir “Hi Matt”???????
8.Í TOW the screamer segir Phoebe að hún hafi flutt dótið hennar Monicu í herbergi Rachel og öfugt. Þær skipta þá um herbergi en daginn eftir vakna þær í gömlum herbergjunum sínum.
9. Í þættinum þar sem þau skoða promvideoið þá spyr Chandler Rachel afhverju nefið á henni væri svona skrýtið og seinna í þættinum sér hann gamlan sundbol af Monicu og spyr hver á hann. Hinsvegar í þættinum þegar þau segja frá versta þakkargjörðardeginum þá er sýnt flashback þar sem Rachel er með asnalega nefið og Monica er feit og þar er Chandler í heimsókn.úps

Jæja þá er þetta komið, ég vona að þið hafið fleiri atriði til að segja frá. Það er sama hversu mörg mistök eru í þættinum, hann er alltaf snilld.

Cactuz-