Ross-inn ROSS GELLER.

Ross er eiginlega þessi feimni af Vinunum, við sjáum það á því hvernig hann þorði ekki að segja Rachel að hann var hrifinn af henni fyrr en eftir 10 ár, og jafnvel þá var það Chandler sem missti það út úr sér. Hann er bróðir Monicu og foreldrar hans hafa miklu meira álit á honum, setja alltaf út á Monicu en láta alt eftir Ross. Hann hefur búið nálægt Vinunum alla tíð, fyrst var það íbúð þarna rétt hjá og svo á móti Monicu í fyrrverandi íbúð The Ugly Naked Guy. Ross er sá eini af Vinunum sem á barn, Ben. Hann hefur skilið þrisvar, fyrst vegna þess að konan hans var samkynhneigð, svo var það Emily og þau skildu vegna þess að hann sagði rangt nafn við altarið og Emily hélt að hann bæri enn tilfinningar til Rachel, og í seinasta skiptið giftist hann Rachel á fylleríi í Vegas. Hann hefur verið með Rachel á föstu, en svo hættu þau saman og ekkert hefur verið á milli þeirra langa lengi….
Ross er líklegast sá greindasti af Vinunum, hann vinnur sem Steingervingafræðingur og hefur yndi af að segja Vinunum sögur um fornleifar og eitthvað slíkt (þótt þau hafa ekki jafn mikið gaman af því og hann.)