Monica Geller Biography um persónuna Monicu og konuna á bakvið hana, Cortney Cox Arquette.

Courtney Cox Arquette:
Courtney fæddist 15 júní 1964 í Birmingham, Alabama. Hún var yngst af fjórum systkinum. Foreldrar hennar skildu þegar hún var 10 ára eftir 19 ára hjónaband. Cox bjó með móður sinni, bróður og tveimur systrum. Cox gekk í Mountain Brook framhaldskóla.
Árið 1982 útskrifaðist Cox úr þeim skóla og fór að læra arkitektúr í Mt. Vernon háskóla í Washington. Nálægt endi fyrsta og síðasta skólaárs hennar kynntist hún Ian Copeland, frænda stjúpföður Cox. Það leið ekki á löngu þar til þau byrjuðu saman. Þegar þar var að komið vildi Cox verða módel. Cox, með hjálp Ian, hóf leik- og módelferil. Hún lék í auglýsingum fyrir Noxema og Maybelline, og fékk einnig smá hlutverk í sápuóperunni As The World Turns. Ian og Cox sáu að samband þeirra gengi ekki, þau voru að vaxa frá hvort öðru, og hættu saman.
Það var ekki fyrr en árið 1984 þegar Cox fékk þjóðarathygli sem stelpan sem Bruce Springsteen togaði upp á svið til að dansa við í endann á Dancing In The Dark tónlistarmyndbandinu. Hún fékk 350 dali fyrir starfið og stökk yfir í stærri og betri störf í iðnaðinum.
Árið 1985 fékk Cox starf í NBC - þáttaröðinni Misfits Of Science. Þátturinn hætti eftir aðeins 4 mánaða göngu. Sama ár var hún ráðin sem Lauren, kærasta Michael J Fox í Family Ties. Þegar sá þáttur hætti var Cox í mikilli kyrrstöðu.
Næsta stóra tækifæri hennar var ekki fyrr en 1994 þegar hún fékk hlutverk í Jim Carrey myndinni Ace Ventura. Bráðlega eftir það fékk hún hlutverkið sitt sem Monica í Friends.
Núna er hún hamingjusamlega gift leikaranum David Arquette, þótt að sögur ganga um að þau séu að huga að skilnaði.

Monica Geller:
Monica er hin taugasjúka, hreinsióða systir Ross í þáttunum. Helst af öllu langar henni að giftast með stórri og fallegri athöfn og eignast börn. Samband hennar og foreldra sinna er ekki mjög gott. Ross er dekraði sonurinn og Monica alltaf útundan. Hún vinnur sem kokkur og er trúlofuð Chandler. Hún hefur alltaf búið í sömu íbúðinni, meðan hinir hafa komið og farið. Það var nú samt eitt skipti þar sem Chan og Joey skiptu um íbúðir við Rach og Mon.
Allt í íbúðinni þarf að vera í röð og reglu, engu má breyta og ekkert má vera óhreint.
Mörgum finnst Monica leiðinlegur karakter og að hún mætti alveg fara, en hvernig væri Friends án hennar Monicu okkur ? (o;