TOW Phoebe´s Wedding Góður þáttur. Phoebe og Mike höfðu sumsé ákveðið að gifta sig. Þar sem stjúpfaðir Phoebe fékk ekki leyfi úr fangelsinu þá bað hún Joey um að leiða sig að altarinu. Joey tók það hlutverk mjög alvarlega og böggaði Mike stanslaust með “föðurlegu” hjali ;o)

Monica gerði alla brjálaða með sínu kreisí skipulagningaræði. Í æfingarkvöldverðinum fékk Phoebe alveg nóg af henni og rak hana. Chandler og Ross kepptust um að fá að taka þátt í brúðkaupinu á einhvern hátt, sem varð til þess að Rachel átti að ákveða hvort þeirra yrði brúðarsveinn. Það fór síðan allt í klessu þegar Phoebe þurfti sjálf að sjá um öll smáatriðin tengd brúðkaupinu þannig að hún réði Monicu aftur. En það varð svo til lítils því að þau urðu að fresta brúðkaupinu vegna snjóbyls.

Rachel fékk svo þá frábæru hugmynd að Phoebe og Mike gætu gift sig úti á götu. Og það var ákveðið. Joey gaf þau saman, Chandler leiddi Phoebe upp að altarinu og Ross var brúðarsveinn/hundapassari :o)

Þetta var voðalega svona *awww* þáttur :o)
Kveðja simaskra