Slappur seinasti þáttur Mér fannst seinasti þáttur frekar slappur, er Chandler að verða að einhverjum aumingja?. Ég vil sjá Joey og Chandler hanga meira saman og fíflast. Þessi atriði með Rachel og Tag voru eiginlega ekkert fyndin og Phoebe vesenið með reykskynjarann var bara skítsæmilegt. Það sem reddaði einhverju var Joey og Ross að reyna að komast af þakinu. Það er langt síðan ég hef séð svona slappan þátt, ef þessir þættir eiga að lifa af í fleiri seríur þá mega ekki koma svona slappir þættir. Ég er að verða brjálaður yfir því að sjá Chandler minnka brandarana og kaldhæðnina og breytast í aumingja. Nú segi ég að vinirnir eigi að fara í einhverja ferð eða eitthvað og að þeir geri eitthvað af sér. It´s a comedyshow for crying out loud:( Hætta þessu rugli og upp með húmorinn, þeir sem vita ekki hvað ég er að tala um tjekkið á þáttum úr seríu 2 eða 3 og sjáið muninn.

Cactuz-
pissed off