Að vita meira og meira..... Það er alltaf jafn gaman að vita meira og meira um Friends.

Vissir þú……

… að hver auglýsing í auglýsingahléi Vinanna kostar 500.000 pund

… að Matthew Perry lék í vinsælu unglingaþáttunum Beverly Hills 90210 snemma á leikferli sínum og sagði um hlutverk sitt "Its kind of a blur, but I remember playing the most popular kid in school who ends up with a gun in his mouth.”

… að Perry er svo orðheppin og fyndinn að handritshöfundar þáttanna skilja eftir eyður svo hann geti fyllt inní.

… að samkvæmt People Magazine var Cortney Cox (Monica Geller) ein af 50 fallegustu kvenna heims og var einnig titluð “Tv hottest babe” af American Playboy. (Hvar var Jennifer ?).

… að Matt LeBlanc fékk sitt fyrsta mótorhjól 8 ára gamall !!!!!

… að Matthew Perry var á föstu með Juliu Roberts eftir að hún lék í þáttunum. M.a. sagði Matthew um hana að hún skyldi eftir tannkrem útum allan vaskinn og væri alltaf að fá lánaða peninga hjá honum.

… að Cortney Cox var með Batmani sjálfum, Michael Keaton, á föstu í fimm og hálft ár.

… að Courtney Cox var sú fyrsta til að segja “period” (blæðingar, túr) í Amerísku sjónvarpi.

… að Central Perk, kaffihúsið sem þau eyða miklum tíma á, er byggður á alvöru kaffihúsi, Manhattan Café í New York. (um að gera að skella sér þangað !!!)

… að Aniston upphaflega prufaði fyrir hlutverk Monicu og Cox fyrir hlutverk Rachel (ýmindiði ykkur hvernig það væri).

… að það fyrsta sem Cox keypti fyrir Friends peningana sína var glænýr Porsche.

… að Schwimmer lék í fyrstu þáttaröðinni af NYPD Blue.

… að Aniston lék í misheppnaðir hryllingsmynd árið 1993, Leprechaun. (Það væri gaman að sjá hana).

.. að LeBlanc viðurkennir að hafa hrækt í mat einhvers þegar hann vann á hamborgarastað í New York.