Ég rakst á nokkrar staðreyndir sem hafa ekki komið hér fram áður.

1. Upphafssenan í hverjum þætti þar sem þau dansa í gosbrunni var tekin upp kl.5 um nótt svo enginn væri á ferli í kring.
2.Sófinn sem vinirnir sitja alltaf í á kaffihúsinu fannst í rusli en var bólstraður upp og lagaður( af hverju veit ég ekki).
3.Apinn Marcel var fyrsti “leikarinn” úr Friends sem lék í stórri mynd, hann var apinn í Outbreak
4.Þegar þátturinn var samþykktur eftir “pilotinn”, buðu NBC öllum leikurunum frítt til Las Vegas, en seinna var þessi hugmynd notuð í þáttunum þegar vinirnir fóru saman til Las Vegas.
5. Sófarnir tveir sem voru inni hjá Chandler og Joey voru fyrst svartir en þeim var svo skipt fyrir brúna stóla út af einhverju veseni með lýsinguna.

Cactuz-