The Chick and Duck komu frá dýraathvarfi og þau búa hjá Joey. Þau koma stundum fyrir í þáttum.
Saga þeirra:
Joey sá það sem hann hélt að væri auglýsing í sjónvarpinu um kjúklinga. Það var í raun fréttaþáttur um það hvernig fólk fengi kjúklinga sem páskagjöf og vanrækti þá. Hann ákvað að kaupa einn kjúkling og koma með hann heim. Joey og Chandler uppgötvuðu þá að þeir höfðu engan tíma til að sjá um kjúklinginn þannig að Chandler ákvað að skila honum. Hann hætti svo við að skila honum þegar hann frétti að kjúklingurinn yrði trúlegast drepinn og í leiðinni ákvað hann að bjarga önd einnig.
Þessi kjúklingur og öndin hafa átt þátt í mörgum minnistæðum atriðum eins og þegar Chandler og Joey eru að baða kjúklinginn og nota hárþurrku til að þurrka honum. Einnig var það mjög fyndið þegar Chandler er að segja við öndina að hún sé allveg jafn falleg og Yasmine Bleeth “yes you´r breast´s are just as firm”. Síðan talaði Joey eitt sinn af sér og sagði Treager(húsverðinum) að þeir væru með chick and a Duck en hann náði að redda sér fyrir horn með því að segja að það eru gælunöfn fyrir Joey og Chandler.
Chick and Duck=snilld

Cactuz-