Rachel og Ross Rachel og Ross byrjuðu saman í fyrsta skiptið í annarri seríu. Ég ætla að fara yfir allt sem gerðist á milli þeirra í fyrstu sería og þangað til þau byrjuðu saman í annarri seríu.

1 sería
Ross, sem var nýskilin við Carol eftir að hún byrjaði með annarri konu, og Rachel, sem hafði nýlega stungið Barry af við altarið, hittast aftur í fyrsta skiptið síðan í menntaskóla. Ross verður strax hrifinn af henni, en hann hafði verið með huge crush on her í skóla.
Í fimmta þætti fara Ross og Rachel að þvo þvott saman. Ross hjálpar Rachel að verða dáldið sjálfstæð og Rachel verður svo ánægð að hún kyssir Ross (Fyrsti kossinn).
Einum þætti seinna verður allt rafmagnslaust í New York. Joey og Chandler reyna að herða Ross upp í að segja Rachel hvernig honum líður. Ross ákveður að segja henni það og fer til hennar og byrjar að bjóða henni á stefnumót þegar flækingsköttur stekkur aftan á hann. Rachel fer að finna eiganda kattarins og hittir Ítalann Paolo. Hann fer með henni aftur upp í íbúðina þar sem Ross varar hann við að vera fyrir sambandi hans og Rachelar. Þegar ljósin kvikna aftur sér Ross Rachel og Paolo vera að kyssast.
Rachel og Paolo eru saman nokkra þætti þangað til að Paolo fer í nudd hjá Phoebe og reynir við hana og Phoebe segir Rachel og hún hættir með Paolo.
Það gerist ekkert beint merkilegt milli Ross og Rachel þangað til í seinasta þættinum þegar Rachel á afmæli. Ross leggur af stað í viðskiptaferð til Kína og skilur eftir gjöf handa henni. Rachel opnar hana og kemst að því að þetta var næla alveg eins og amma hennar átti. Þá missir Chandler það út úr sér að Ross sé ástfanginn af henni. Rachel þýtur út á flugvöll í von um að hann sé ekki farin en rétt missir af honum.
Á deginum sem Ross kemur aftur fer Rachel með blómvönd á flugvöllin til að taka á móti honum……. en hann kemur úr flugvélinni með annarri konu.

2 sería
Ross kynnir fyrir Vinunum nýju kærustuna sína, Julie. Rachel, í uppnámi yfir því sem gerðist, sefur hjá Paolo aftur. Joey segir Rachel að hún verði að segja Ross hvernig henni líður. Hún hittir Ross úti á svölunum þar sem hann segir henni hve mikið hann hati Paolo og að hún eigi skilið að vera með einhverjum sem lætur hana líða vel, eins og Julie gerir fyrir hann. Rachel, orðlaus, ákveður að segja ekki Ross hvernig henni líður.
Nokkrir þættir líða án nokkurs en svo kemur að þættinum þar sem Rachel heyrir að Ross og Julie eru að fara að kaupa kött saman og verður áhyggjufull yfir því að samband þeirra gæti verið að verða alvarlegt. Rachel fer á stefnumót en getur ekki talað um annað en Ross. Eftir að hún er orðin dáldið full og farin að þreyta manninn ákveður hún að hringja í Ross frá veitingastaðnum sem hún er á og segja honum að hún sé komin yfir hann. Ross er ekki við en hún leggur inn skilaboð á símsvaranum hans. Næsta dag vaknar hún og man ekkert eftir því sem gerðist kvöldið áður. Ross er í íbúðinni og hringir þaðan til að tékka á skilaboðum. Rachel man þá allt í einu eftir skilaboðunum og reynir að stoppa hann, en um seinan.
Ross segir hina eftirminnilegu setningu “You´re over me ? When were you under me?”. Rachel segir honum hvað henni finnst um hann. Ross þarf að fara vegna þess að Julie og hann eru að fara að kaupa kött. Seinna um kvöldið kemur Ross til Rachelar þar sem hún er að loka Central Perk. Þau rífast í smástund og Ross fer síðan út. Rachel læsir dyrunum og fer síðan að gráta. En svo kemur Ross aftur og þau tvö kyssast heitum kossi í fyrsta skipti. Þetta er eitt besta atriði þáttanna. Allir sammála ?
Í næsta þætti þarf Ross að velja milli Rachelar og Julie. Chandler skrifar lista fyrir hann um kosti og galla þeirra til að hjálpa honum að velja. Ross ákveður að velja Rachel. Allt virðist fullkomið í fyrstu…….en svo sér Rachel listann. Hún verður svo reið að hún vill ekkert með Ross hafa lengur.
Rachel talar varla við Ross nokkra þætti og segir vinahópnum að hún beri engar tilfinningar til hans lengur. Svo kynnir hún fyrir þeim nýjan kærasta, Russ, sem lítur alveg eins út og Ross og hagar sér alveg eins. Rachel sér það ekki í fyrstu en hættir síðan með honum eftir að hún hefur tekið eftir því og Russ verður ástfanginn af Julie, fyrrverandi kærustu Ross.
Í næsta þætti eru allir vinirnir að horfa á video af senior promi (veit ekki hvað það heitir á íslensku) Monicu og Rachelar. Þar hefur Rachel verið svikin af stráknum sem átti að fara með henni. Hún er grátandi og foreldrar Ross sannfæra hann um að fara með Rachel. Ross klæðir sig í jakkaföt og er á leiðinni til að koma Rachel á óvart en þá strákurinn einmitt komin og Rachel fer með honum.
Þegar Rachel sér þetta stendur hún strax upp og kyssir Ross. Þar með hefst samband þeirra sem á þó eftir að enda með látum og mikið eftir að ganga á. En eiga þau eftir að byrja aftur saman ????