Jæja, loksins er komið að því!! ( það er að segja fyrir þá sem ekki hafa downlodað 10. seríunni í tölvunni sinni, einn af þeim er ég!) 10. serían og jafnframt sú síðasta verður sýnd í kvöld. Ég veit ekki með ykkur en ég er að farast úr forvitni og spennu um afdrif sambands Joeys og Rachelar :D Satt að segja held ég að það eigi eftir að rætast úr sambandinu hjá þeim :)

Mín Spá:

- Joey og Rachel halda sambandinu áfram og gifta sig jafnvel!

- Chandler og Monica eignast barn.

- Ross og Charlie (ég vil taka fram að Charlie er kona fyrir ykkur sem þekkið ekki mikið til) enda saman, þ.e.a.s að þau gifta sig eða eitthvað ;)

- Phoebe og Mike , nú ætla ég að segja orð sem ég segji ekki aftur hér í þessari grein! ég held að þau eigi eftir að gifta sig :)



Jæja, með tilliti til veruleikans þá eigum við ekki að vera að gera okkur svona miklar vonir en……… ja, ég lifi í voninni, hehe!


Veriði blessuð og sæl og heyrumst næst eftir FRUMSÝNINGU 1 ÞÁTTARINS ÚR 10 SERÍU AF FRIENDS Á ÍSLANDI!!!!



Takk fyrir mig :)