Ég sá á einni fan-síðu þær fréttir að það hefur í langan tíma staðið til að gera Friends kvikmynd. Það hafa allskonar handrit verið skrifuð en aldrei nógu góð. Það er líklegt(ef myndin verður gerð) að hún snúist í kringum ástarsamband Ross og Rachel og að hinar fjórar persónurnar komi fram sem aukaleikarar. Sko í fyrsta lagi þá er ég ekki viss um að þetta sé góð hugmynd að gera kvikmynd hvað þá að láta hana fjalla um ástarsamband Ross og Rachel sem allir eru búnir að fá nóg af. Ef það á að gera einhverja mynd þá ætti að gera mynd um Chandler og Joey( og þá er Chandler ekki giftur Monicu) hún gæti heitið The Adventures of J-man and Chany, í svona dumb and dumber stíl. Það gæti líka verið að David Schwimmer leikstýri myndinni ef hún verður gerð. Hann hefur einmitt leikstýrt fjölmörgum Friends-þáttum og einni kvikmynd. Ég vona að þessi mynd verði ekki gerð en ef hún verður gerð( í einhverjum græðgis tilraunum) þá verður hún að fjalla um Chandler og Joey og ekkert annað. Hvernig er annars hægt að gera kvikmynd um Friends?

—–*–*–*
——*-*-*
——–*
——–*
——–*
Cactuz