Hér er smá hugmynd sem mér datt í hug eftir grein Kexa.

Í tvær vikur verður send ein spurning sem við kemur Friends inn á Korkana, þeir sem taka þátt senda mér einkapóst með svarinu og stranglega er bannað að pósta svarinu á Huga. veitt er 1 stig fyrir rétt svar og sá sem hefur flest stig í lokin hlýtur titillinn “Óformlegt Ofur Friends Nörd Huga.is” :)

Keppnin hefst Mánudaginn 12 Jan. og ég reyni að setja inn spurningarnar um hádegið og síðan hafið þið 24 tíma til að svara, svör eru ekki tekin gild ef þau berast síðar. Hver keppandi má bara svara einusinni á dag og ef fleirri svör berast sama dag fær hann ekkert stig þótt annað hvort svarið er rétt.

Merkja verður svörin Spurning dagsins og dagsetningu.

Þetta er bara til gamans gert til að lífga upp á áhugamálið, ef þið hafið einhverjar spurningar endilega póstið þeim hérna.


Þá er bara að vona að stjórnendurnir samþykki þetta… :)
————–