Rachel að kyssa Winonu Ryder !!! Þær fréttir voru að berast frá Friends-genginu að nýr gestaleikari væri að bætast í hóp stórstjarnanna sem hafa leikið í Friends. Winona Ryder á víst að leika í þætti í 7 seríu. Það er alveg staðfest, en hinsvegar er líka sagt að Ryder og Rachel eigi að kyssast í þáttunum !!!! Ég veit ekki almennilega hvað er að gerast þarna úti en Rachel að verða lesbía !!! Kossinn var hinsvegar ekki staðfestur og ekki búið að ákveða hvort hann verði. Hvað finnst ykkur um að Rachel og Winona kyssist ? Ég frétti líka að Harrison Ford væri búin að leika í þætti í nýju seríunni. Vitiði eitthvað um þetta ?