ég hef aldrei verið forfallinn Friends aðdáandi en hef haft gaman af þáttunum og horft kannski þegar hann hefur kannski verið á dagskrá í einhverri endursýningu á stöð 2.

En nú undanfarið þá hef ég náð að safna mér 1-9 seríu og mun 10 sería fylgja í kjölfarið þegar þáttunum lýkur.

Ég ákvað að byrja á svona friends þema og byrjaði á 1.seríu og ætla ég að þræða allar seríurnar og er ég í þann mund að klára 5 seríu. Og er ég nú alveg gjörsamlega orðin húkt og hef mikið gaman af.

Phoebe: Alveg rosalega sérstök(vitlaus) og er oft með skemmtileg skot og fær maður eiginlega aldrei leið á hennar persónu í friends en er ekki besti vinurinn.

Rachel: Hún er langt frá því að vera besti vinurinn en hún er alls ekki leiðinleg og getur verið oft verið ágæt og finnst mér hún vera bara ómissandi hluti af þessari heild.

Monica: Æj hvað get ég sagt hún er alveg ágæt sem ein af þeim en mér finnst hún vera lang slakasti vinurinn

Joey: Var minn uppáhalds vinur ásamt Chandler áður fyrr en núna er ég ekki á þeirri skoðun en mér finnst hann samt vera frábær og er hann ekki alveg sá klárasti, en þegar maður er að horfa svona stíft á þættina þá getur maður vanist honum fullmikið því hann er soldið einhæfur og eru þetta oft sömu brandararnir.

Chandler: er mikið með af óbeinum skotum og gerir mikið grín af vinum sínum og öllum í kring og spurning hvort að hann verði verri eftir að hann byrjar með Monicu en ég er bara að klára 5 seríu og eru þau búin að vera saman stutt og veit ekki hvernig framhaldið verður. En jú hef mikið gaman af honum var lengi vel minn besti ásamt Joey.

Ross: Þegar ég var yngri og horfði stundum á friends hafði ég ekki miklar mætur á Ross og fannst hann svona ágætur stundum en núna get ég sagt etir því sem ég hef elst að mér finnst ROSS VERA ALLRA BESTI VINURINN og ég hlæ ég mest af vitleysunni í honum. Þar sem ég er kominn í 5 seríu þar sem allt standið í kringum það þegar hann er að fá nýju íbúðina alveg drepfyndið.

Langar mig að nefna einhvað sem ég man t.d þegar Ross tekur fram hljómborðið og er að leyfa þeim að hluta á tónlistina sem hann hafði unnið í þegar hann var yngri óg byrjar síðan að spila á kaffihúsinu alveg frábært.

Líka þegar hann er í nýju íbúðinni sinni og er alltaf í glugganum að herma eftir einhverju t.d að hákarl sé að ráðast á hann og einhvað fleira síðan setja Monica og Rachel gervimyndir af sér við gluggann svo Ross haldi að þær séu alltaf að horfa og Ross segir
“They just cant get enough” brosir og heldur áfram að gera einhverjar eftirhermur.
Síðan situr Ross bara í sófanum og með fjarstýringuna í hendinni og þá segir Joey ohh Ross að þykjast að vera horfa á sjónvarpið
og Rachel segir hvað ertu að bulla hann situr þarna og er að horfa á sjónvarpið og þegar hún sleppir orðinu þá sýna þeir Ross sitjandi í sófanum með fjarstýringuna í hendinni og það er slökkt á sjónvarpinu og Ross að kíkja svona til hliðar til að athuga hvort þau séu að horfa hehehe algjör snilld.

En maður verður nátturulega að horfa á þetta erfitt að segja frá þessu.

En kannski er ég bara með minn einkahúmor og ykkur finnst þessi atriði ekkert fyndin, mér finnst líka voða skrýtið hvað mörgum finnst Ross vera ekkert sérstakur

Ef þetta verður birt þá vill ég afsaka Stafsetningarvillur og ef þetta er illa orðað ég er nefnilega í vinnunni og era að gera þetta í flýti.