Leikararnir bakvið Friends. Vinir eru jú leikin af 6 stórkostlegum leikurum, sem hafa gefið þessum persónunum Rachel Greene, Monica Geller, Phoebe Buffey, Joey Tribbiani, Chandler Bing og Ross Geller sérstakan stíl. Ég ætla aðeins að fjalla um þessa leikara. Ég er ný hérna inni þannig að ég veit ekki hvort að það sé búið að gera þetta eða ekki.
En hérna kemur þetta!

Courteney Bass Cox (Arquette): Gælunafn CeCe. Hæð 5´5” (1,65m).
Courteney er fædd 15. Júní 1964 í Birmingham, Alabama, USA. inn í auðuga suðurríkja fjölskyldu. Faðir hennar Richard L Cox (1930-2001) var kaupsýslumaður og var giftur móður hennar Courteney. Hún er yngst af fjórum systkinum tvær eldri systur hennar eru Virginia og Dottie og eldri bróðir hennar Richard Jnr. Hún var alin upp í Mountain Brook, Alabama. Courteney var pabbastelpa og var því niðurbrotin þegar foreldrar hennar skildu árið 1974 og faðir hennar flutti til Florida.

Hún varð uppreisnagjarn unglingur og gerði lífið ekki auðvelt fyrir móðir sína og stjúpföður, Hunter Copeland, en í dag eru þau bestu mátar.
Hún gekk í Mountain Brook High School þar sem hún var klappstýra, stundaði tennis og sund. Á loka árinu byrjaði hún að stunda smávægileg fyrirsætustörf .
Eftir útskriftina fór hún í Mount Vernon College að læra arkitekt en hætti þar eftir eitt ár og fór til New York að reyna fyrir sér sem fyrirsæta og skráði sig hjá virtu fyrirsætufyrirtæki, Ford Modelling Agency. Hún komst á forsíðu margra unglingablaða og fl.
Á meðan hún stundaði fyrirsætustörf var hún í leiklistarskóla. Árið 1984 fékk hún fyrsta tækifærið til að leika lítið hlutverk í einum þætti af As The World Turnes (sápa).
En “her big brake” eins og sagt er, var þegar Brian De Palma fékk hana til að leika í músík myndbandi með Bruce Springsteen “Dansing in the dark”
Og 1982 lék hún kærustu Michael J Fox í “ Family Ties”
1994 Fékk hún hlutverkið sem Monica Geller í Friends og hefur hún þar náð að festa sig sessi sem leikona. Hún giftist núverand eiginmanni sínum David Arquette í San Francisco, 12. júní 1999.

David Schwimmer: Hæð 6´2” (1.88m).
David er fæddur 19. Ágúst 1969 í Williamstown, Massachusetts, USA
alinn upp í Los Angeles
Foreldrar Arlene Colman-Schwimmer og Arthur Schwimmer.
David var hvattur af framhaldsskóla kennara sínum til að fara í sumarnámsskeið í Northwestern University og gerði það með stíl.
Hann hefur ekki bara leikið í kvikmyndum heldur líka leikstýrt bæði kvikmyndum og leikritum.
Báðir foreldrar hanns léku í sjónvarpsmyndinni “Since you´ve been gone” sem hann leikstýrði.
Hann er í stjórnarnefndinn Rape Foundation for the Rape Treatment Center of Santa Monica.
Meðlimur í Delta Tau Delta International Fraternity.

Jennifer Aniston: Gælunafn: Jen. Hæð 5´5” (1.65m)
(Upprunalegt fjölskyldunafnið er Anastassakis en því var breytt þegar þau fluttu frá Grikklandi til New York)
Jennifer er fædd 11. Febrúar 1969 í Sherman Oaks, California, USA.
Hún bjó eitt ár með fjölskyldu sinni sem barn í Grikklandi, en þau fluttu síðan til New York. Foreldrar hennar skildu þegar Jennifer var 9 ára hún ólst upp hjá móður sinni Nancy Aniston. Faðir hennar John Aniston lék í sápuóperunni “Days Of Our Lifes” sem Victor Kiriakis.
Jennifer var 11 ára gömul þegar hún gekk í Rudolf Steiner School's drama club og vaknaði þá líka myndlistaáhugi hennar og var birt mynd sem hún málaði þegar hún var 11 ára gömul í The Metropolitan Museum of Art. Árið 1987 byrjaði hún í New York's High School of the Performing Arts. Eftir útskriftina kom hún fram í mörgum Off Broadway leikritum. Árið 1989 fékk hún fyrsta sjónvarpshlutverkið sitt í þáttaröðinni Molloy. Hún bað upprunalega um að fá að leika hlutverk Monicu Geller í Friends, hún neitaði að prófa hlutverkið Rachel Green en allt kom fyrir ekki og hún sló til og er okkar ástsæla Rachel Green.
Hún giftist unnusta sínum til tveggja og hálf árs Brad Pitt laugardaginn 29. Júlí 2000 í Malibu.

Lisa Marie Diane Kudrow: Hæð 5´9” (1.75m)
Lisa fæddist 30.Júlí 1963 í Encino, California, USA.
Faðir hennar Lee Kudrow er lækir, og móðir hennar Nedra Kudrow er ferða umboðsmaður. Lisa var alin upp í Tarzana. Hún var í skólaliðinu í tennis í framhalds og háskóla. Lisa útskrifaðist frá Vassar College in Poughkeepsie, New York, með BS próf og gráðu í líffræði. Í fyrstu vildu hún helga sinn feril ransóknum, svo að hún fór til Los Angeles til að vinna með föður sínum. En Lísa var hvött af vini bróður síns,
grínistans Jon Lovitz, til að fara að leika og þannig kom það til að þessi háa ljóshærða og græneygða dís fór út í show biz.
Lisa útskrifaðist með láði frá leiklistahópnum The Groundlings árið 1989.
Lisa byrjaði að leika viðutan gegnilbeinuna Ursulu í “Mad About You”
og það var til að hún fékk hlutverkið í Friends.
Lisa giftist Michale Stern auglýsinga framkvæmdarstjóranum 27, May 1995 og 7.May 1998 eignuðust þau soninn Julian Murray.
Þau búa í Los Angeles.

Matt LeBlanc: Hæð 5´11” (1.80m)
Matt fæddist 25.Júlí 1967 í Newton, Massachusetts, USA.
arfleið er af frönsku, Írsku, Ítölsku, Hollensku og Ensku.
Útskrifaðist úr Newton North High School 1985.
Vann sem fyrirsæta til margra ára og var kosinn einn af 50 Most Beautiful People af People Magazine árið 2000.
Er giftur Melissa McKnight og eiga þau von á frumburðinum í mars 2004.
Ég skrifa ekki meira um hann það er nýleg grein um hann hér.

Matthew Langford Perry: Hæð 6´1” (1.85m)
Matthew fæddist 19. Ágúst 1969 í Williamstown, Massachusetts, USA.
Matthew var alinn upp í Ottawa, Ontario, þar sem hann var junior tennis leikari í Canada.
Hann flutti til Los Angeles 15 ára gamall til að búa með föður sínum, leikaranum John Bennett Perry,og þar fékk hann meiri áhuga á leiklist en tennis,og þó að að hann hafa tekið þátt í mörgum skólaleikritum var hann líka ákafur tennisspilari.
Þegar hann útskrifaðist úr framhaldsskóla ætlaði hann að skrá sig í háskólann í suður Kaliforniu. En þegar honum bauðst tækifæri til að leika í sjónvarpsþáttaröðinni “Second Chance” ákvað hann að grípa tækifæri á að byrja á leiklistaferli sínum
og það var ekkert aftur snúið með það, hann hefur leikið í mörgum Hollywood kvikmyndum, sem ég ætla ekki að fara að telja upp hér.
Perry býr nú í Los Angeles hann hefur gaman af að spila hokky og hafnabolta í sínum frítíma.

Jæja þetta varð nú lengra en ég ætlaði mér :-/ þetta eru bara upplýsingar sem ég hef aflað mér á netinu og set það svona upp á ísl. fyrir ykkur kæru friends aðdáendur þið flest vitið allt um leikarana en samt alltaf gaman að lesa svona. Vonandi hef ég geta glatt ykkur með þessum pistli mínum, og kannski hver veit er eitthvað hérna sem að þið vissuð ekkert um.