The one after Joey and Rachel kiss Jæja nú styttist í að seria 10 komi, fyrsti þátturinn verður sýndur úti 25 sept ef mínar upplýsingar eru réttar. Ég verð að viðurkenna að mig hlakkar frekar mikið til, ég held svei mér þá að mig hafi hlakkað minna til brúðkaupsdagsins mín en að sjá seriu 10 með Friends.
Þátturinn endaði eins og allir vita með því að Joey ákvað að slá til og kissa Rachel eftir að hann sá Ross og Charle kissast. Hvað verður úr því I wonder ?
Chandler og Monica eru enn að basla við að verða ófrísk. Kemur það til með að ganga upp hjá þeim ?
Og hvað með Phoebe og hennar tvo biðla hvað verður um það ég veit að hún valdi Mike vill hann þá giftast henni eins og hún vill ?
Svo er það Ross og Charlie þau virðast ekki ná að vera saman almennilega í þættinum, er Charlie stóra ástin í lífi Ross eða er þetta enn eitt skotið.
Semsagt margar spurningar sem brjótast um í mér. ER ÉG EIN UM ÞAÐ ? eða eru fleiri sem eru að spá í þessu sama og ég ? Þetta er jú víst að ég best veit síðasta serian með Friends þeir þurfa þá að vanda sig vel með þessa seriu svo að þeir tolli á toppinum og líka eitthvað gott veganesti fyrir okkur aðdáendurna til að eiga til minningar um þá. Svo endilega kæru Friends aðdáendur segið mér hvað þið erum mest að hlakka til að sjá í seriu 10 og hvað þið eru að spá í að verði með framtíð þeirra allra !
F*R*I*E*N*D*S FOREVER !!!!!