Fyndnustu atriðin (senur) ykkar Það eru svo margir búnir að tala um fyndnustu þættina, skemmtilegustu þættina og uppáhaldsÞÆTTINA en enginn hefur tekið sér til og startað umræðu um fyndnustu atriðin.

Ég man ekki mörg atriði sem ég get flokkað sem fyndnustu atriðin í augnablikinu en hér koma nokkur atriði sem ég hló og hló og hló af. (Ég er þá nýbúinn að horfa á þessi atriði þess vegna man ég þau.)

Næstum því öll atriðin í 617 þarna með UNAGI. Það var svo fyndið þegar Ross var að tala við svarta gaurinn í sjálfsvarnartímanum. Svo annað atriði í þessum þætti þegar Carl labbar inn og segir alleg…. hey monica…. hey chandler (minnir það) og þau bara stara á hann. Svo segir hann. How you doooiiiin. (Í stað How YOU doin.) Svo líka annað atriði í þessum þætti þegar Carl segir. Hey can i have a slice of that cake …… Joey: PIZZA, WE LIIIKE PIZZA. :)


Svo var svo ÓGEÐSLEGA FYNDIÐ þarna þegar Joey Chandler og Ross voru að æfa leikinn sem Joey ætti vera hoste á. (Leikurinn var með alveg fáranlegar reglur). Æji, þið hljótið að muna eftir þessu (eða skilja um það sem ég er að tala um).


Svo er það eftirminnilega atriði í 902 (held ég) þegar Ross kýlir í vegginn……. allt í sambandi við það atriði.

Núna er ég að hugsa lengra aftur….. reyna að muna eftir einhverju ógeðslega fyndnu atriði…… still thinkin'.

já núna man ég eftir einu. Þegar Joey ætlaði að sýna ömmu sinni að hann lék í einhverjum þætti, síðan man hann að var klipptur úr þættinum, joey skrapp aðeins frá og tók sjálfur upp eitt atriði, minnir mig að Joey var með dóta byssu eða eitthvað þannig, svo þegar atriðið var búið (í spólunni sem joey var að sýna ömmu sinni) þá var chandler að syngja eitthvað lag.


Já annað atriði, ég man ekki hvort að það var líka í Unagi þættinum eða nálægt honum en Chandler gaf monicu svona mixtape of romantic songs í Valentines gift og þegar þau voru að vanga þá kom Janice ( í spólunni) og söng með. Djöfull hló ég….. svipurinn á chandler var priceless.


svo er auðvitað The Routine. Þátturinn var ekkert sérstakur en dansinn var GEÐVEIKUR….. HAHAHAHAHHA :)


Æji ég man ekki meira. Endilega komiði með fleiri atriði.

Geitin kveður.