Jæja, nú langar mig svolítið að tjá mig um strákana úr Friends. Þessari grein er frekar beint til stelpnanna en stákanna þó svo að ykkur (strákar) sé velkomið að svara að vild. Það er nú bara þannig að hér á Íslandi þekkir nokkurn vegin hver kjaftur þennan frábæra sjónvarpsþátt og myndast því oft umræður á milli stelpna um þáttinn og þá oftar en ekki hver drengjanna þriggja sé sætastur eða skemmtilegastur.
Og eftir margar umræður um nákvæmlega þessi málefni fór ég að hugsa og reyna að setja saman einhverja hópa sem fíla hvern og einn karakter og að hver sé vinsælastur útlitslega séð og hver sé skemmtilegastur og mín niðurstaða er eftirfarandi:

1.Joey - niðurstaða mín er sú að Joey sé vinsælastur hvort sem um er að ræða fegurð eða skemmtileg heit. Hópurinn sem er mest að fíla Joey eru stelpur 17 ára og yngri.

2.Ross - menntamaðurinn og sjarmörinn lenti í öðru sæti og það er klárlega útlitið sem skilaði Ross þessum árangri. Hópurinn sem er mest að fíla hann eru konur 18 ára og eldri.

3.Chandler - húmoristinn og sá gifti í hópnum lenti hér í þriðja sæti hvað útlitið varðar en hann getur huggað sig við það að hann var ekki langt frá Joey hvað varðar skemmtileg heit varðar. Chandler er greinilega umdeildur því að ég gat bara ómögulega einskorðað hann við einhvern ákveðinn aldurshóp.


Ég vil taka það fram að þessar niðurstöður eru einungis það sem ég hef heyrt oftast í þessum umræðum sem ég hef átt um þessi málefni og þurfa ekki að vera réttar ef að á breiðari hóp er litið.

Jæja, það væri stórskemmtilegt að fá að vita hver þessara peyja ykkur finnst Sætastur/Skemmtilegastur….
Mín persónulega skoðun er að Chandler ætti að vera efstur á listanum en Joey sá þriðji annars eru þeir auðvitað allir frábærir greyin ;o)
Imagination is more important than knowledge. (A.Einstein)