Muniði eftir snilldar gaurnum Eddie?

Hann kom þegar Joey flytur í sína eigin íbúð og eyðir öllum peningnum sínum í glerdýr og getur síðan ekki borgað þá og skuldar alveg niður til helv****…..

Chandler finnur annan gaur til að búa hjá sér og það er Eddie…

Eddie líka ekki við strandverði og íþróttir og það pirrar Chandler gegt mikið… hann vill frekar sirja inn í herbergi og lesa ljóð eða eitthvað annað bölvanlegt…

Þegar Chandler fær nó af honum (því að hann kemur að honum horfa á sig sofa) biður Chandler hann um að flytja í burtu og eddie segjir já.

Svo fer Chandler á kaffihúsið til að segja öllum góðu fréttirnar og þá kemur hann með gínuhaus og segir að þeir geta notað hann undir bjór eða eitthvað í partýunu sem þeir ætla ða halda um helgina.
Svo segir hann að þeir hefðu farið til Atlantik city og Chandler hefði keypt skó á hann…. (auli hóst auli)

Þá segir Chandler honum að hann eigi að drulla sér í burtu og flytja…

Svo kemur Chandler úr vinnuni og þá er Eddie þarna enn, en núna er hann að þurrka ávexti… (auli hóst auli)

Svo endar þetta með því að Joey flytur aftur til Chandlers og þeir henda öllu dótinu hans Eddies út og svo kemur hann og segist vera herbergisfélaginn hans Chandlers en Joey og Chandler segja að Joey hefði búið þarna í 3 ár og þá segir Eddie að hann sé þá bara í vitlausari íbúð og fer….


ef ég gleymdi einhverju segið það þá…