Það eru til fullt af fyndnum atriðum með friends en þetta eru svona þau sem eru mér efst í huga.

Mér fannst t.d mjög fyndið í þakkargjörðarþættinum þar sem Rachel átti að gera eftirréttinn og hann mistókst og Joey og Ross vildu ekki segja henni það því að þeir vildu fara í partý til herbergisfélaga Joey því hún var svaka flott og vinkonur hennar áttu víst líka að vera það. En mér fannst það snilldarinnar þáttur og ég held að ég hafi fengið harðsperrur í magann þegar ég horfði á hann. Mér fannst mest fyndið þegar Joey var að kenna öllum gestum hvernig ætti að hegða sér svo að Rachel myndi ekki fatta neitt. Þessi þáttur var snilld

Mér fannst líka mjög fyndið í níundi seríu þar sem Ross er í fýlu út í Joey út að bónorðinu og Joey notar gæsalappirnar bandvitlaust og veit ekki hvað það þýðir að gera gæsalappir I´m “sorry”

Mér fannst líka mjög fyndið þegar Chandler og Monica voru saman og Joey var alltaf að fela sambandið fyrir Phoebe, Ross og Rachel. Líka þegar Ross uppgötvar að Chandler og Mon eru saman.

SVo fannst mér líka ótrúlega fyndið þegar Joey var að gera spilagaldur fyrir alla og leit á spilið og sagði þeim hvað það var

Það var líka fyndið þegar Joey var með fullt af sósu á andlitinu og RAchel sagði honum að hann væri með sultu á andlitinu og þá kom hann með litla puttann og þurrkaði í endanum á vörunum.

Þetta eru atriði sem mér finnst standa upp úr, þau eru auðvitað fleiri en þetta eru þau atriði sem eru mér minnisstæð í augnablikinu.