Rachel

Hún Rachel er uppáhaldið mitt í friends, hún er bæði rosalega sæt og líka mjög skemmtileg. Fatasmekkurinn er mjög flottur og hún er með æðislegt hár.

Monica

Monica fer svoldið í taugarnar á mér. Hún er alltof ráðrík og vill alltaf hafa hlutina á sinn hátt.Eins og til dæmis með lottómiðana það var henni að kenna að þau unnu ekki, ef hún hefði ekki verið með sína frekju þá höfðu miðarnir aldrei dottið niður. Hún skammast líkaalltof mikið í hinum, t.d ef einhver gleimir að nota glasabakka eða hellir óvart niður. Hún er mjög ólík hinum vinunum.

Pheobe

Pheobe er mjög fyndin, hún er svo mikil ljóska að það hálfa væri nóg. Hún er líka ömurleg á gítar en greijið hún veit ekki af því. Fatasmekkurinn hins vegar er ekki flottur, þessi stóru hálsmen og litríku bolir hef ég aldrey fílað. Mér finnst að Mike og hún eigi að vera saman they are so ment to be together.

Ross

Jæja þá er komið að vísindagaurnum, Hann er alltof nördalegur og of upptekin af vinnunni sinni. Hann getur verið svoldið fyndinn en samt of mikil klöguskjóða og hefur ofmiklar áhyggjur alltaf.

Joey

Hann er líka uppáhaldið mitt, hann er lang sætastur og fyndnastur en samt lang heimskastur en kvenfólkið veður í honum. Hann er leikar en kann samt ekkert að leika, ætli hann hafi ekki bara vaknað einn daginn og ákveðið að verða leikari.

Chandler

Hann er ágætur getur verið fyndinn en hann var miklu skemmtilegari í gömlu þáttunum og hann hefur líka fitnað mikið.