Courtney er fædd 15. júní 1964 í Alabama. Hún er yngst af þremur systrum en hinar tvær heita Virginia og Dottie. Courtney á líka einn eldri bróður ,Richard, en hann var skírður eftir pabba hennar. Árið 1974, þegar hún var tíu ára skildu foreldrar hennar og pabbi hennar flutti til Flórída. Hún fór í nám við Mountain Brook skólann þar sem hún var klappstýra og var líka í sund- og tennisliðinu. Á lokaári í skólanum varð hún fyrirsæta. En eftir útskriftina fór hún frá Alabama til að læra arkítektúr við Mount Vernon háskólan. En eftir eitt ár hætti hún í skólanum og gerðist fyrirsæta aftur. Hún var framan á mörgum blöðum svo sem Tiger Beat og Little Miss. Eftir það fór hún að leika í auglýsingum fyrir Maybeline, Noxema, New York Telephone Company og Tampax. Á meðan á öllu þessu stóð var hún í leiklistarskóla. 1984 fékk hún fyrsta hlutverkið sitt. Þetta var lítið hlutverk í myndinni As The World Turns. Síðan þá hefur hún fengið ýmis hlutverk en er þó frægust fyrir leik sinn í Vinum.

Jennifer Aniston fæddist 11. febrúar 1969 í Sherman Oaks í Kaliforníu. Jennifer er ættuð frá Grikklandi en þar átti hún heima í eitt ár þegar hún var lítil. Foreldrar hennar skildu þegar hún var níu ára en Jennifer hélt áfram að búa hjá mömmu sinni á meðan pabbi hennar lék í þáttunum ,,Days of our lives” . Hún kynntist fyrst leiklist þegar hún var ellefu ára og gekk í Rudolf Steiner leiklistaskólann. Seinna lék hún í Broadway sýningum eins og ,,For Dear Life” og ,,Dancing on Checker's Grave”. Fyrsta stóra hlutverk hennar var þó í myndinni Mollolly (1990). 1994 var hringt í hana og hún beðin að koma í áheynarprufu fyrir þættina ,,Friends like these” í hlutverk Monicu Geller. Hún neitaði því alfarið en fór í prufu sem Rachel Green. Núna næstum tíu árum seinna leikur hún en Rachel í þessum vinsælu þáttum.


30. júlí 1963 í Encino í Kaliforníu fæddist Lisa kudrow sem seinna lék Phoebe Buffay í Friends. Þegar Lisa var í skóla var hún í tennisliðinu. Hún útskrifaðist úr Vassar skólanum í New York. Hún fékk hugmyndina af því að gerast leikari frá vini síns sem var leikari. Vinurinn hét Jon Lovitz. Cynthia Szigeti sem er frægur leiklistarkennari tók Lisu í nám, en þar kynntist Lisa mörgum öðrum leikurum svo sem Conan O'Brien. Þegar hún útskrifaðist fékk Lisa hlutverk í þáttunun ,,Mad about you” sem gengilbeina að nafni Ursula. Þetta leiddi til að hún fékk hlutverk Phoebe í friends. Síðan hefur hún verið tilnefnd til margra verðlauna til dæmis Golden Globe. Lisa er gift Michael Stern en saman eiga þau einn son.