Hvernig finnst ykkur Friends liðið leika svona almennt fyrir utan skemmtanagildi þeirra? Meina ég þá til dæmis þær kvikmyndir sem þau hafa gert upp á eigin spýtur, sem og í þáttunum sjálfum. Persónulega finnst mér Ross (Schwimmer) & Joey (Le Blanc) koma best út í þáttunum en í kvikmyndunum hefur Chandler (Perry) skarað fram úr. En mér finnst það mjög gott, og nauðsynlegt fyrir þau, að leika í kvikmyndum líka. Þau öðlast meiri reynslu, gerir þau að betri leikurum og þau festast ekki jafn mikið inn í hlutverkinu. Vissuð þið til dæmis að sá eini sem þurfti ekki að taka hæfnispróf/inntökupróf inn í Friends var Ross (Schwimmer), enda var þátturinn upphaflega byggður í kringum hann og um hann en það breyttist mjög fljótt.