Hverjum finnst ykkur að phoebe ætti að vera með? Mér finnst
eiginlega David, efnafræðingurinn skrítni. Þau passa geðveikt
vel saman og eru rosa ástfangin.. en samt hafa Joey og
Phoebe alltaf átt eitthvað saman if u know what I mean..
En hafiði tekið eftir einu; í 9. seríu segir Phoebe að hún hafi
ALDREI verið í sambúð með manni, en það er ekki rétt, því
einu sinni var hún með Gary sem var lögga og þau bjuggu
saman. muniði ekki eftir því?

Mér finnst Rachel og Joey passa ágætlega saman, mér finnst
bara svo leiðinlegt að þau geti ekki verið saman, því Joey, “the
loner” hefur aldrei verið súper “in love” og þetta var fyrsta
alvöru ástin hans!! það hefði verið so gaman að þau hefðu
verið saman. en Ross og Rachel eru samt eitthvað so ment 2
B.

Monica og Chandler eru alltí læ, monica er nátturulega dáldið
hyper, en það er allt í fína!
Samt skrítið að pæla að þau voru rosa drukkin (eða allavega
Monica) þegar þau byrjuðu saman í London, skrítið að þau
enduðu saman. ég meina út af því að maður gerir crazy hluti
þegar maður er drukkinn og sér oftast eftir því. Það voru
örugglega ekki miklar tilfinningar í þessu þegar þau voru
saman í London…….