Jennifer Aniston og Brad Pitt Jennifer og Brad

Hér kemur smá uppdráttur af þróuninni á sambandi þeirra hjóna :

Vor 1998 :
Slúður fer að berast um að þau tvö séu að dúlla sér saman, sagt er að Brad hafi
Ferðast til Texas til að eyða tíma með elskunni sinni þar sem hún var þar
Við tökur á myndinni Office Space. Bæði neita að það sé neitt í gangi.

Júní 1998 :
Tekin er mynd af þeim saman á Tibetan Freedom Concert, í Washington. Myndirnar
Eru birtar í öllum blöðum næstu mánuðina og sáust þau einnig saman á The Four
Seasons Hotel, þar sem Brad leigði svítu. Ennþá neita þau öllu.

Desember 1998 :
Enn og aftur sjást turtildúfurnar saman, en í þetta sinn ganga sögur um að trúlofun sé í nánd.
Og ennþá neita þau sögusögnunum.

Febrúar 1999:

Brad heldur ekki einu sinni, heldur tvisvar uppá þrítugsafmæli Jennifer. Þann 6 Febrúar
Býður hann 500 manns í afmælisveislu hennar á fínum veitingastað.
Helgina eftir það leigir hann einkaþotu, fyrir sig, Jen, og nokkra vini til að halda uppá afmælið í Acapulco. Á þessum tíma er hann farinn að tala um hana sem “My girl”.

12. September 1999 :

Parið kemur saman hönd í hönd, á Emmy verðlaunahátíðina, bæði með risa bros á vör :)

Október 1999 :

Brad kemur fram á forsíðu Rolling Stone, í viðtalinu segir hann loksins frá sambandi sínu með Jen.

29. Júlí 2000 :

Turtildúfurnar gifta sig með pompi og pragt.



Við skulum bara vona að þetta endist hjá þessum elskum :)