Fréttir af vinunum Fréttir af vinunum :


Annað kvöld, þann 12. Janúar, verður haldið hið árlega “peoples choice awards”.
Friends þættirnir eru tilnefndir til “favorite tv comedy series”. Einnig er Matt LeBlanc tilnefndur til “favorite male tv performer” og Jennifer Aniston er tilnefnd til “favorite female tv performer”


Matthew Perry og Robin Tunney ( The Craft) hafa tekið að sér aðalhlutverkin í kvikmyndinni “Fever”, en hún verður leikstýrð af Mia Goldman. Í myndinni leika þau par sem lendir í vandræðum með sambandið.

Fever er ekki eina myndin sem Perry hefur áhveðið að leika í. Einnig mun hann leika í framhaldinu af “The whole nine yards” og myndinni “The beginning of wisdom” þar sem hann mun leika á móti föður sínum, John Bennett Perry.


Courteney Cox hefur það að áhugamáli að kaupa dýr hús, gera þau upp, og selja þau aftur með miklum hagnaði. Nú er hún búin að selja enn eitt húsið.
Spjallþáttastjarnan Ricky Lake og eiginmaður hennar keyptu húsið á rúmar $6,5 milljónir dollara.
Árið 1996 hafði Courteney keypt húsið á $2.1 milljónir dollara.
Húsið var með 5 svefnherbergjum, sundlaug, og líkamsræktarsal.


Þá er það komið í bili,
kveðja, Isabel :)