Jæja nú er búið að sýna annann þáttinn, og ég verð bara að segja að hann er SNILLD!!:) og atriðið á kaffihúsinu með Joey og Ross er eitt það fyndnasta sem ég hef séð!

Jæja þátturinn byrjaði þegar Rachel og Ross voru að koma heim með Emmu litlu, og vinirnir tóku a móti þeim (en auðvitað koma foreldrar eða aðrir fjölskyldumeðlimir þeirra ekki við sögu).
Ross heldur áfram að tuða og tuða við Rachel útaf því að hún sagði “já” við Joey, en Rachel hafði vit á að láta Joey forða sér.

Chandler þarf fljótlega að fara á stjórnarfund, en þar sem hann hafði verið svo stressaður fyrir fundinn hafði hann ekkert sofið nóttina fyrr, og sofnar þess vegna á fundinum. En hann vaknar svo við það að verið er að spyrja hann hvort hann sé samþykkur, og hann vissi auðvitað ekkert um hvað væri verið að tala og sagði bara já. En komst þá að því að hann hafði verið að samþykkja að flytja til Tulsa, og vinna þar.

En heima hjá Ross og Rachel er verið að hugsa um Emmu litlu, en svo fatta þau að það vantar bleiur og Ross fer út að kaupa. Hann kemur við á kaffihúsinu á leiðinni heim að kaupa möffins fyrir Rachel, og hittir þar Joey, og þeir fara að spjalla saman. Ross er fúll yfir því að hann hafi beðið Rachel, og Joey er með samviskubit. Joey segir Ross að kýla sig…þetta atriði er frábært og eiginlega ólýsanlegt, þannig að þið sem hafið ekki séð þetta verðið að horfa. Allavega, þetta “samtal” þeirra endar með því að þeir þurfa að fara á sjúkrahúsið þar sem Ross er handleggsbrotinn.

Chandler segir Moincu að þau séu að flytja til Tulsa. Hún flippar.
Hann fer þá til yfirmanns síns og segir henni að hann hafi ekkert vitað hvað hann hafi verið að samþykkja og vilji ekkert flytja til Tulsa. Hann fær hana samt ekki til að skipta um skoðun.

Emma litla grætur og grætur heima þar sem Rachel, Pheobe og Monica reyna að hugga hana, en ekkert dugar. Svo á endanum nær Monica að hugga greyið litla, og Rachel gerir hana að aðalbarnapíunni;)


Og nú er bara að bíða þangað til í næstu viku…

Endilega bætið eitthverju við það gæti verið að ég hafi gleymt eitthverju…