Engin Rachel :( Kæru Hugarar.
Í dag var ég að lesa það að Jennifer Aniston, hún sem leikur Rachel í Friends þáttunum hefur ákveðið að leika ekki í 10. þáttaröðinni ef hún verður framleidd en hún hefur nú leikið í níu þáttaröðum af Friends.

Ástæðan fyrir að hún ætlar að hætta er að hún og eiginmaður hennar, Brad Pitt hafa ákveðið að byrja á barneignum.

Fyrir stuttu las ég samt það að Brad vildi ekki byrja á barneignum heldur vera meira í leikarabrasanum en hann hefur núna víst fallist á það sem Jennifer vildi, eignast einhverja krakkaorma.

Jennifer er sú eina af þeim í Friends sem er hefur verið eitthvað að spjara sig vel í kvimyndum en hún hefur meðal annars leikið í myndinni Good girl svo eitthvað sé nefnt.

Ég held samt að ekki allir verði ánægðir með að hún ætli ekki að vera með ef 10. þáttaröðum verði gerð því þá verður ekki lengur einn friends og þá Racel Green :( en við eigum eftir að sjá hana vonandi í einhverjum kvikmyndum.

Kv. Hallat