Nýjustu fréttir af vinunum. Tilnefningar eru komnar fyrir hið árlega “people´s choise awards” fyrir árið 2002.
Matt LeBlanc var tilnefndur til “favourite male tv performer” en aðrir tilnefndir í sama flokki voru Bernie Mac og Ray Romano. Einnig var Jennifer Aniston tilnefnd til “favourite female tv performer” á móti Debra Messing og Patricia Heaton.
Að sjálfsögðu eru Friends þættirnir sjálfir með tilnefningu fyrir “favourite tv show” ! Í fyrra unnu þættirnir verðlaun og einnig Jennifer Aniston, en þetta er fyrsta skiptið sem Matt er tilnefndur.

Heyrst hefur að Dermot Mulroney (my best friend´s wedding) muni koma fram í þrem friends þáttum sem gestaleikari. Hann á víst að leika mann sem leysir Rachel af á meðan hún er í fæðingarorlofi en það á eftir að fara mjög í taugarnar á Rachel. Hann kemur fyrst fram í þættinum “the one where Rachel goes back to work.”

Courteney breytir nafni sínu úr “Cox Arquette” og aftur í “Cox”
Þegar Courteney ákvað að hafa ekki nafn eiginmanns síns, David Arquette, fóru margir að velta því fyrir sér hvort nú væri hjónabandið á enda. En Courteney segir að allt sé í góðu lagi. Hún hafi viljað halda fjölskyldunafninu af virðingu við föður sinn, sem lést í fyrra af völdum krabbameins.
“when I was a kid, I wanted to change my name so badly because I didn´t like it. Now that my dad´s gone, I don´t want to lose it.” Segir hún í viðtali við tímaritið In – Style Magazine.