Var að skoða gamlar kannanir og þá sérstaklega eina frá því í lok nóvember, þar sem er verið að spyrja fullt nafn á Monicu og þar koma nokkrir möguleikar til greina. Ég hef nú horft á alla þættina og man eftir einum þar sem Monica segist ekki ætla að taka upp Bing nafnið. Svo hef ég ekki séð neitt meir að ég muni um þetta með Bing en hef séð á netinu að hún sé skráð sem Geller Bing. En annað hef ég séð sem kom ekki einu sinni sem valmöguleiki í könnuninni, það er að fangamerkið hennar Monicu er MEG. Monica E. Geller. Svo hvort sem hún hefur tekið upp Bing eða ekki þá hefur hún EKKI tekið í burtu milli nafnið sitt, sem by the way ég veit ekki hvað er og finn bara Monica E. Geller á netinu, (held að engin viti það). Ég er ekki að pirra mig á því bara að segja að það hefði verið flott að hafa það sem möguleika (Monica E. Geller Bing) og sjáð hvort einhver hefði fattað það.

En ég veit þó að Karen, Francis og Muriel eru millinöfn á þremur persónum í Friends???????????