Víðar dyr tilraunastofunnar hafa, á ný, verið opnaðar uppá gátt! Við erum meira að segja búnir að láta mála veggina og fengum flísalagningameistara til að flikka upp á klósettið og kaffistofuna! Athugið samt að kaffivélin er biluð, eins og er hehehe…

Fyrsta verkefnið er þegar farið af stað! Það felst hönnun á bókarkápu ímyndaðrar kilju. Nú er um að gera að sleppa fram af sér beislinu og dusta rykið af Photoshop, Illustrator og öllum hinum tólunum.

Fylgist með á tilraunastofu-kubbnum og sýnið hvað í ykkur býr!

Stjórnin