Manga? Þar sem ég á erfitt með að teikna óla prik er ég nokkuð sáttur með þessa skissu sem ég teiknaði eftir að hafa litið á nokkur tutorials fyrir algjöra byrjendur.

Munninn lærði ég að teikna á einum stað, augun á öðrum, eyrun á öðrum og hárið… tja það er bara krot. En það var inspireað frá google leitarniðurstöðu:P

Boðskapurinn er að allir geta lært að teikna =)

Svo er annað mál hvort ég sé ekki farinn svolítið langt frá því að vera að teikna manga þarna..

Hef reynt að taka í gegn í Photoshop en það gengur ekkert hjá mér.. tips anyone?

P.s Kíkið á þetta http://www.polykarbon.com/tutorials/ ef þið hafið áhuga, þessi síða hefur verið mér mjög hjálpleg.