Ég hef verið að reyna að byrja að læra einhvað í grafískri hönnun og ég oft komið inn á www.hugi.is/grafík en það er aldrei neitt sem gerist hérna. T.d þessi könnun sem er hérná á síðuni er frá 25. júlí. Og líka með korkana að það er aldrei neinn sem svarar þessu.Í vefsíðugerðini er alltaf svarað öllu svarað strax, eiginlega alltaf næsta dag. Ég veit að ég get ekki neitt ykkur til að svara spurnigunum en þið eru alltaf að væla yfir hvað það er lítill áhugi um þetta áhugamál.
Það sem ég er að biðja um að þið reynið að vekja grafikin á huga upp frá dauðum með því að senda inn nýjar fréttir bara um einhvað; einhvað nýtt sem þið hafið verið að hanna eða hvað sem er. Svo meigið þið breyta um skoðanakannanir svo reglulega og reyna að svara spurningum á korkunum. Svo þetta með Tutorial svæði á huga, mér fynst þetta he#$%&i góð hugmynd.