Heilir og sælir grafíkerar,

Fyrst, - margt af því sem maður er að skoða hérna hjá ykkur er meiriháttar flott !
Það eru greinilega miklir talentar í gangi…

En að efninu, - þannig er að ég kann ekkert í graffík (smá á photoshop til að bjarga mér…)

en bráðvantar að láta búa til fyrir mig logo og nafnspjald….

ég er einyrki að byrja í hugbúnaðargerð og tölvuviðgerðum og svoleiðis, - þannig að ég er ekki með fullar hendur fjár, - en það er örugglega hægt að semja um eitthvað….

endilega ef það er einhver fær áhugamaður hér sem vill taka þetta þá sendið mér póst á codex@hugi.is

takk takk…..

p.s. tek að líkindum stór vef “forritunar” verkefni í sumar (asp/ado) og vantar sennilega graffíker í það, - það yrði bara á taxta, since I dont have to pay…. ;) - I´m dead broke…