Jæja, þá er bréfið sem 101 okkar voru að bíða eftir komið heim með póstinum, og við vitum hvað verður um okkur næsta ár… eða hvað verður ekki um okkur næsta ár!!!
Ég? Ég komst eigi inn og hef því nú ráðlagt að gráta sorgartárum næsta mánuð… eða allavega helgina!
En… ég mun lifa áfram, nokkuð eðlilegu lífi, allavega þangað til á næsta ári, þegar ég ætla að reyna aftur… OG ÞÁ SKAL ÉG… JÁ ÉG SKAL KOMAST INN… annars reyni ég aftur!
Eina sem mig langar pínu að vita, það er af hverju mér var hafnað! Mappan, ekki næg reynsla eða hvað. Veit einhver hvort það er hægt að fá að vita þetta einhversstaðar???

Allavega, þið sem komust inn (damn you) til hamingju! Við hin… við verðum bara betri næst! :)
————————-