Ég á bækur til að læra á Maya, keypti mér fyrir nokkrum árum Maya kennslupakka sem innihélt 6 bækur ásamt geisladiskum.

Fyrsta bókin sem ég byrjaði á hét Learning Maya 6: Foundation en sökum anna í skóla ákvað ég að bíða til betri tíma í að lesa þessar bækur.

Núna þegar ég hef meiri tíma ákvað ég að dusta rykið af bókunum og byrja en ég sá mér til hryllings að ég er búinn að týna Learning Maya 6: Foundation disknum (sem inniheldur allt dótið sem maður notar í tutorials í bókinni).

Ef einhver á þessa bók og lumar á geisladisknum þá væri það frábært ef ég mætti búa til afrit af þeim disk. Ég er tilbúinn í að borga viðkomandi fyrir ómakið

kveðja
MisterBong