Ég veit ekki alveg hvort þetta eigi við í þessum flokki, en allavega þá er ég að fara að hanna svona litla og netta símaskrá fyrir Nemendafélag Menntaskólans að Laugarvatni Mími, en ég er í stjórn þess nemendafélags, mig vantar bara smá hjálp með leit að forriti til að búa til svona símaskrá, ég hef prófað 2 forrit þau eru Adobe InDesign og Macromedia Freehand svo reyndi ég eitthvað að nota Word en mér fannst það eitthvað svo ruglingslegt, svo ef það er hægt að nota þessi 2 forrit sem ég nefndi gæti einhver bennt mér á góða tutorial síðu, þannig ef einhver veit af einhverju forriti til að búa til t.d bækur eða tímarit endilega svarið þessu. þ.e.a.s ef einhver hefur nennt að lesa þetta bull ;)